Þjónustan
Fótaaðgerðastofa Guðrúnar Alfreðsdóttur
býður upp á eftirfarandi þjónustu.
Hefðbundnar fótaaðgerðir
Almenn fótsnyrting, meðferð líkþorna,
varta, sveppasýkingar í nöglum, niðurgróinna
nagla (t.d. spangir), sem og almenn ráðgjöf
um fóthirðu, skó og innlegg og sérstök
fyrirbyggjandi meðferð og ráðgjöf
fyrir sykursjúka.
Fót- og göngugreining
Fót- og göngugreining gefur til kynna hvort um fótskekkju
er að ræða, s.s. tábergssig, hælskekkja,
plattfótur eða holfótur, sem síðan
gjarnan orsakar verki í fótum, mjóhrygg
og upp úr. Um 85% fótmeina eru af völdum
áunninnar fótskekkju sem mjög oft orsakast
af slæmum skóm. Þetta má færa
til betri vegar með notkun innleggja og með vönduðum
skóm. >>
Sjá nánar um slæmar skó
Umboð fyrir GREEN COMFORT
GREEN COMFORT skórnir og innleggin eru þróuð
af dönsku fagfólki, s.s. læknum, lífaflsfræðingum,
sjúkraþjálfurum og fótaaðgerðafræðingum.
Innleggin byggir Guðrún svo upp með
tilliti til fótskekkju viðkomandi.
Ráðgjöf
Ráðgjöf um fóthirðu og val á
skóm og innleggjum. Auk þess ráðgjöf
og sérstök fyrirbyggjandi meðferð fyrir
sykursjúka.
Ekki ganga fram af sjálfri/um þér! HÉR
eru nokkrar staðreyndir sem þér þætti
e.t.v. betra að vita um.
|
|
|