FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Fótaaðgerðastofa Guðrúnar Alfreðsdóttur
Búðagerði 10-12
> sjá kort
108 Reykjavík
sími: 553 35 03

netfang: postur@friskarifaetur.is
veffang: www.friskarifaetur.is

Opið alla virka daga kl. 10-17,
eða eftir samkomulagi.


Guðrún Alfreðsdóttir fótaaðgerðafræðingur hefur umboð fyrir GREEN COMFORT gæðaskó og innlegg. Hvort tveggja er viðurkennt sem sérstaklega fótvæn framleiðsla, eða biomechanic sem þýða má sem lífaflsfræðilega hönnun (f. fætur og hreyfingu). GREEN COMFORT skór eru m.a. notaðir af starfsmönnum DFDS, flugliðum SAS og í fjölmörgum dönskum heilbrigðisstofnunum.

Smelltu á mynd til að stækka
Fótaaðgerðastofa Guðrúnar er ein af fáum stofum, enn sem komið er, sem auk hefðbundinna fótaaðgerða býður upp á fót- og göngugreiningu ásamt innleggjagerð. Ákveðnar tegundir áunninnar fótskekkju eru algengar - einkum tábergssig, ekki síst hjá konum. Og þó ýmis einkenni leyni sér ekki áttar fólk sig oft ekki á hvað er að gerast í fótunum, eða telur að ekkert sé til ráða. En til er, sem betur fer, einföld en áhrifarík lausn; rétt uppbyggð innlegg sem „leiðrétta“ skekkjur og geta um leið hægt á eða fyrirbyggt frekari meinsemdir í fótum/stoðkerfi. >> Sjá nánar um tábergssig

Hjá Fótaaðgerðastofu Guðrúnar getur þú fengið faglega ráðgjöf um fóthirðu, val á skóm, innleggjum og kremum sem koma fótum þínum til betri heilsu.

Kynntu þér þjónustu Fótaaðgerðastofu Guðrúnar Alfreðsdóttur.

FRÍSKARI FÆTUR – BETRI LÍÐAN!
 
> Stofan
> Þjónustan
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa