Skórnir frá GREEEN
COMFORT fást í hvítu
fyrir heilbrigðisstarfsmenn og alla þá
sem þurfa starfs síns vegna að vera í
sérstaklega hreinlegum skóm. Hvort tveggja
skórnir og innleggin fást í miklu
úrvali bæði fyrir dömur og herra.
GREEN COMFORT framleiðir
skó fyrir heilbrigðisstarfsfólk með
alveg einstökum innleggjum sem veita góða
höggvörn og örva blóðrás.
Þreyta og þyngslatilfinning heyrir nánast
sögunni til!
Skórnir eru til fyrir dömur og herra og allir í
hvítu: sandalar, heilir reimaðir skór, hálfsandalar,
klossar. Allir skórnir með GREEN
COMFORT innleggjum.
GREEN COMFORT hefur einkaleyfi
á hinu frábæra bioechanic innleggi sem notað
er í alla skó sem frá fyrirtækinu
koma, en fást einnig ein og sér og í fjórum
þykktum. GREEN COMFORT innleggin
eru þróuð af teymi fagfólks á
Bispebjeg sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn.
Við hönnun og þróun innleggjanna var eftirfarandi
haft að leiðarljósi:
| 1 |
Veita góða höggvörn
með æskilegri mýkt og þéttleika
og minnka þar með það margfalda álag
sem stoðkerfið fær við hvert skref á
hörðu undirlagi. |
| 2 |
Örva blóðrás til
og frá fótum og draga þannig úr
þreytu og þyngslatilfinningu. |
| 3 |
Innleggin mótist eftir fætinum
í hverju skrefi en haldi þess á milli
upprunalegri lögun. |
| 4 |
Innleggin séu slitsterk og haldi
eiginleikum sínum. |
| 5 |
Minnka núning og svitamyndun í
skóm og hemja bakteríuflóru. |
| 6 |
Hafa allt efni húðvænt. |
GREEN COMFORT skór og innlegg
er viðurkennd vara og notuð m.a. af starfsfólki
Bispebjerg Hospital, Köbenhavns Amts Sygehus í Glostrup,
Rigshospitalets Rygcenter, Ortopædisk Hospital í
Árósum, Gigtsanatoriet í Middelfart, Randers
Central Sygehus, Novia Denmark, Danish Crown, DFDS, DSB, SAS.
Volvo AB og Scania í Svíþjóð,
Tine Meieri í Noregi.
Veistu ...?
 |
að allt að 85% fótameina (þ.m.t.
áunnin fótskekkja) má rekja til óheppilegs
skótaus, |
 |
að við tökum u.þ.b. 20.000 skref
á dag, þar af 9 af hverjum 10 skrefum á
hörðu undirlagi, |
 |
að verkir í fótum, hnjám, mjöðmum
og mjóbaki stafa oft af slæmum skóm
eða innleggjum, |
 |
að s.k. fótlaga skór og innlegg með
innbyggðum lægðum og hæðum
geta verið varhugaverðir, |
 |
að góð innlegg geta gert vonda skó
mun betri. |
|
|
|