FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Skórnir
Guðrún Alfreðsdóttir hefur einkaumboð fyrir GREEN COMFORT gæðaskó og orkuinnlegg. Um er að ræða sérlega fótvæna framleiðslu þar sem tekið er mið af lögun og uppbyggingu fótanna, hámarks hreyfigetu þeirra og vörn fyrir stoðkerfið í heild. Innleggin eru sérstakt þróunarverkefni fagfólks á Bispebjerg sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn þar sem læknar, hreyfiaflsfræðingar, fótaaðgerðafræðingar og sjúkraþjálfarar hafa unnið saman.

GREEN COMFORT skór með orkuinnleggjum eru notaðir af starfsfólki fjölda sjúkrastofnanna í Danmörku og víðar, sem og starfsfólki stórfyrirtækja sem þarf að standa eða ganga mikið á hörðu undirlagi.

Skórnir fást í úrvali fyrir dömur og herra. Einnig skór fyrir heilbrigðisstarfsfólk, t.d. hvítir (og svartir) sandalar, heilir skór og klossar. Sérstakir skór fyrir breiða eða vangæfa fætur (távandamál) og fyrir gigt- og sykursjúka. Einnig skór með afrafmagnandi sóla og ýmsar tegundir af öryggisskóm. Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum.

Orkuinnleggin eru fyrirferðalítil og frábær að ganga á. Fást í fjórum þykktum frá 2 – 6 mm og hæfa því öllum skótegundum. Innleggin, einnig þau sem byggð eru upp, má auðveldlega nota í fleiri en eina skó sambærilega. Sérstök innlegg eru líka til fyrir sykursjúka.

Orkuinnleggin eru framleidd úr húðvænum efnum og uppfylla eftirfarandi kröfur:
  • Hafa æskilega mýkt og þéttleika til að veita hámarks höggvörn og minnka þar með álagið sem stoðkerfið fær við hvert skref.
  • Örva blóðrás til og frá fótum og draga þannig úr þreytu og þyngslatilfinningu.
  • Eru slitsterk og endingargóð, halda lögun sinni og eiginleikum.
  • Minnka núning og hemja baketeríuflóru fótanna.
Skoðaðu skóna frá GREEN COMFORT sem Guðrún Alfreðsdóttir hefur í umboðs- og smásölu.
Skoðaðu úrvalið af hvítum skóm, söndulum og klossum frá GREEN COMFORT.

Vellíðan fótanna ræður líðan þinni.
 
> Skórnir
> Skóúrvalið
> Hvítir skór og sandalar
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa