FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Gjafakort
Finnst þér gaman að gleðja aðra? Varla er hægt að hugsa sér nokkuð betra en gott dekur við fæturna, því ef okkur líður vel í fótunum þá líður okkur almennt vel. Hér er því hugmynd að góðum glaðningi handa ástvini eða kærum vini sem þú vilt gera virkilega gott.

Algjört fótadekur
Fótaaðgerð, ráðgjöf og gott fótanudd – þ.e. fótsnyrting og ef með þarf t.d. meðferð líkþorna, varta, sveppasýkingar í nöglum, niðurgróinna nagla.

Fót- og göngugreining
Greining á fótunum sem segir til um hvort um fótskekkju er að ræða, s.s. tábergssig, hælskekkja eða jafnvel hol- eða plattfótur, sem fyrr eða síðar orsakar þreytu og verki í fótum og loks hnjám, mjóbaki og upp úr. Slíka skekkju má færa til betra horfs með nettum innleggjum í skó, sem byggð eru upp m.t.t. vandamáls hvers og eins. >> Sjá nánar um fótamein

Í kaupbæti ...
Persónuleg ráðgjöf um fóthirðu og val á skóm og innleggjum sem hæfa hverjum og einum við öll tækifæri. Auk þess ráðgjöf og fyrirbyggjandi meðferð fyrir sykursjúka.

Er fótadekur annars eitthvert dekur!? Fæturnir eru undirstaða okkar allt lífið, þá megum við ekki vanrækja. Fótameðferð hjá fagmanneskju getur orðið til þess að fótamein uppgötvast sem hægt er að bæta - og þar með koma í veg fyrir verri afleiðingar.

Gefðu ástvini, ættingja eða góðum vini gjafakort á tíma hjá Guðrúnu í Listhúsinu og láttu athuga hvort fætur þeirra eru í lagi – þeir eiga það skilið!

>> Sjá gjafakort

 
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva - miðlun
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa