FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Tábergssig
Tábergssig er ein algengasta fótskekkjan og eru konur í meirihluta. Hættan eykst með aldrinum en þó hrjáir tábergssig einnig yngra fólk.

Hvað gerist?
Tábergssig verður þegar millibein í fætinum falla niður og þverboginn undir táberginu minnkar eða hverfur. Slæm vandamál geta fylgt í kjölfarið; skekkja/beinútvöxtur í stórutáarlið - hamartær (sinar styttast) - taug við 3.-4. tá getur klemmst og valdið doða eða sársauka – rangstaða í fótum veldur röngu álagi og jafnvel rangbeitingu fóta í gönguferli, sem svo aftur kallar á fleiri vandamál.

Fyrstu einkenni
Aukin eða óeðlileg þreyta eða eymsli í fótum, oft í forfæti; fótur breikkar, doði í tám.

Helstu ástæður
Gjarnan er um samspil að ræða; háir hælar, miklar stöður/ganga á hörðum skóm á hörðu undirlagi, þungun, mikil líkamsþyngd, erfðir.

Hvað hægt er að gera
Hægt er að „leiðrétta“ skekkju með réttri uppbyggingu innleggs – og þá umfram allt í þá skó sem notaðir eru undir mestu álagi. Skekkjan sem slík gengur e.t.v. ekki til baka, en fætur og stoðkerfi fá aftur réttara álag.

 
> Um fótaaðgerðafræði
> Fótamein
> Tábergssig
> Slæmir skór
> Orðalisti
> Reglugerð um starf-
semi fótaaðgerða-
fræðinga
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva - miðlun
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa