FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Slæmir skór
Slæmir skór eru þeir skór sem ekki hæfa lögun fótanna, nauðsynlegri hreyfigetu þeirra eða stoðkerfinu í heild. Þeir eru t.d. of þröngir, stuttir, stífir, þungir, harðir, lágir yfir tærnar, án hælstuðnings, með röngum jafnvægispunktum, of háum hælum, úr óekta efni o.s.frv.

Sumir hafa vanið sig á slæma skó og því aðlagað sig þeim að einhverju marki, t.d. háa hæla (hásinar hafa styst) eða of þrönga (tær hafa skekkst), en oftast kemur þó að skuldadögum.

Margir eru þeir sem staðhæfa að þeir noti góða og breiða skó, jafnvel þótt þeir þjáist stöðugt af líkþornum, niðurgrónum nöglum eða jafnvel fótskekkju. Besti mælikvarðinn er að teikna annars vegar útlínur fótarins (standandi) og hins vegar skósins. Ef skórinn er mjórri en fóturinn þá er hann einfaldlega of þröngur! Einnig má taka ummál tánna og ummál táhettunnar á skónum til að finna út hvort tærnar fá nægilegt svigrúm til hreyfingar upp á við í gönguferlinu!

En þó grundvallaratriðið sé góðir skór og innlegg þá er að sjálfsögðu í fínu lagi að punta sig í „pjattskó“ eina og eina kvöldstund öðru hvoru.
 
> Um fótaaðgerðafræði
> Fótamein
> Tábergssig
> Slæmir skór
> Orðalisti
> Reglugerð um starf-
semi fótaaðgerða-
fræðinga
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva - miðlun
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa