Reglugerð nr. 184/1991 um menntun, réttindi og skyldur
fótaaðgerðafræðinga.
1. gr.
Rétt til að kalla sig fótaaðgerðafræðing
og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess
hefur leyfi heilbrigðisráðherra.
2. gr.
Leyfi skv. 1. gr. má veita þeim íslenskum
ríkisborgurum sem lokið hafa námi í
fótaaðgerðafræði skv. námsskrá
sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
samþykkir. Í námsskrá skal fjallað
um bóklegan og verklegan hluta námsins og hvar
verklegi hlutinn skuli stundaður.
Leyfi má og veita þeim íslenskum ríkisborgurum
sem lokið hafa námi í fótaaðgerðafræði
frá skólum erlendis, sem viðurkenndir eru
af heilbrigðisyfirvöldum viðkomandi lands. Umsækjendur
skulu hafa næga kunnáttu í réttarreglum
er lúta að starfinu.
Leita skal umsagnar landlæknis og stéttarfélags
áður en leyfi er veitt.
3. gr.
Nú uppfyllir umsækjandi skilyrði 2. gr. að
öðru leyti en því að hann hefur
ekki íslenskt ríkisfang og er þá
heilbrigðisráðherra heimilt að veita honum
ótakmarkað eða tímabundið leyfi
að fenginni umsögn landlæknis og stéttarfélags,
enda sanni hann nægilega kunnáttu í íslensku
máli.
4. gr.
Starfsvettvangur fótaaðgerðafræðinga
er á heilbrigðisstofnunum og á eigin stofum.
Með fótaaðgerð er átt við meðhöndlun
fótameina, t.d. að fjarlægja harða húð
og líkþorn, klippa og hreinsa neglur, þynna
óeðlilegar þykkar neglur, sérsmíða
spangir á niðurgrónar neglur og veita fræðslu
og faglega ráðgjöf.
Fótaaðgerðafræðingar mega á
stofum sínum ekki veita aðra þjónustu
en meðhöndlun fótameina og fræðslu
á því sviði nema sú starfsemi
sé aðgreind frá fótaaðgerðum.
Fótaaðgerðafræðingur má ekki,
án samráðs við lækni, taka til
meðferðar einstakling með augljós sjúkdómseinkenni,
s.s. sýkingu í fótum, sykursýki,
hjarta-, blóð- eða æðasjúkdóma.
5. gr.
Fótaaðgerðafræðingi er heimilt að
hafa starfsfólk sér til aðstoðar, við
annað en meðhöndlun fótameina og fræðslu,
sem ávallt skal starfa á ábyrgð hans.
6. gr.
Fótaaðgerðafræðingi er skylt að
gæta þagmælsku um atriði sem hann fær
vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara
skv. lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan
helst þótt hann láti af störfum.
Sömu reglur skulu gilda um starfsfólk það,
sem fótaaðgerðafræðingar kunna að
hafa í starfi.
7. gr.
Fótaaðgerðafræðingi ber að þekkja
skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og
tileinka sér nýjungar er varða starfið.
8. gr.
Fótaaðgerðafræðingi er skylt að
halda dagbók um þá sem leita til hans
og aðrar skýrslur í samræmi við
fyrirmæli landlæknis.
9. gr.
Verði landlæknir þess var að fótaaðgerðafræðingur
vanrækir skyldur sínar, fari út fyrir
verksvið sitt eða brjóti í bága
við fyrirmæli laga eða heilbrigðisyfirvalda,
skal hann áminna viðkomandi. Nú kemur áminning
ekki að haldi og ber þá landlækni að
kæra málið fyrir ráðherra. Um
fótaaðgerðafræðinga gilda að
öðru leyti reglur læknalaga nr. 53/1988 með
síðari breytingum.
10. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. lögum nr.
24/1985 um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta,
öðlast gildi þegar við birtingu.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar
er heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
heimilt að veita leyfi þeim, sem starfað hafa
sem fótaaðgerðafræðingar í
a.m.k. þrjú ár fyrir gildistöku reglugerðar
þessarar og sem eru í starfi við gildistöku
hennar. Sama gildir um þá sem starfað hafa
sem fótaaðgerðafræðingar í
a.m.k. þrjú ár en hættu störfum
á síðustu tveimur árum fyrir gildistöku
hennar.
Umsóknum skal skilað fyrir 31. desember 1991 til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar
um nám og starfsreynslu í fótaaðgerðum.
Matsnefnd, skipuð fulltrúa frá heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneyti, landlækni
og læknadeild Háskóla Íslands skal
meta umsóknir og umsækjendur.
Nú hefur umsækjandi ekki starfað að fótaaðgerðum
í a.m.k. þrjú ár eða hefur
starfað að fótaaðgerðum í a.m.k.
þrjú ár en var ekki í starfi á
síðustu tveimur árum fyrir gildistöku
hennar og skal heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
þá heimilt að veita umsækjanda leyfi,
enda hafi hann staðist námskeið í faginu
sem matsnefndin telur nauðsynlegt.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
17. apríl 1991.
Guðrún
Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga. >> Meira
Hjá Guðrúnu er
OPIÐ alla virka daga
frá kl. 10 til
17, eða eftir frekara samkomulagi.
Tímapantanir og upplýsingar í síma
553 35 03 eða með
tölvupósti til postur@friskarifaetur.
Um 85% fótameina nútímafólks
teljast áunnin að mestu. Hér er átt
við allt frá líkþornum til fótskekkju,
t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla.
>> Meira
Allir skór frá GREEN
COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan
innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >>
Meira
Rétt til að kalla sig
fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá
einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra.
>> Meira