FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Orðalisti : fætur og skór
bakverkir Geta verið orsök fótmeina eða fótskekkju.
beinútvöxtur Á sér oft stað á fótum, t.d. á hæl og stórutáarlið.
biomechanic Lífaflsfræðileg hönnun/þróun.
dömuskór GREEN COMFORT gæðaskór við öll tækifæri.
forvarnir Ráðgjöf og meðferð m.t.t. fótameina/sjúkdóma.
fótaaðgerðafræðingur Sérmenntuð manneskja sem fæst við hin ýmsu fótamein auk fótsnyrtingar, t.d. niðurgrónar neglur, vörtur, líkþorn, sveppasýkingar. Sumir fótaaðgerðafræðingar fást jafnframt við fót- og göngugreiningu og innleggjagerð.
fótaaðgerðastofa Þar er fengist við ýmis fótamein og ráðgjöf, auk hefðbundinnar fótsnyrtingar.
fótaaðgerðir Víðtæk fótameðferð, s.s. snyrting, meðferð líkþorna, niðurgróinna nagla, varta og sveppasýkinga í nöglum.
fótakrem Krem við ýmsum fótkvillum eða til forvarnar.
fótamein Fótskekkja, líkþorn, sveppasýking, vörtur, niðurgrónar neglur.
fótanudd M.a. til að styrkja vöðva í fótum og örva blóðrás. Sjá líka fótaaðgerðastofa.
fótaráðgjöf Ráðgjöf fótaaðgerðafræðings um velferð fóta, innlegg, skó o.fl.
fótaverkir Geta orsakast af fótskekkju, tímabundinni rangbeitingu fóta eða rangri skónotkun. Sjá fótgreining.
fótaþreyta Getur orsakast af rangstöðu í fótum, t.d. tábergssigi og óheppilegu skótaui.
fótgreining Greining á liðum, vöðvum og álagspunktum m.t.t. fótskekkju.
fótraki Orsakar oft blöðrur, sprungur, óþef. Má gjarnan rekja til óheppilegs skótaus og/eða sokka.
fótskekkja Tábergssig, plattfótur, holfótur, hæl- og táskekkja. Getur verið ættgeng eða áunnin; starfstengd eða orsakast af rangri skónotkun.
fótsnyrting Almenn snyrting fóta og tánagla. Fótaaðgerðafræðingar fást að auki við ýmis fótamein. Sjá fótaaðgerðafræðingur.
fótsveppur Oft milli tánna. Smitandi (t.d. opinberir sund- og baðstaðir). Meðferð fremur auðveld.
fótsviti Sjá fótraki.
fótþurrkur Húðflögnun, oft sprungur á hæl, kláði.
fætur Velferð fótanna er mikilvæg. Frískari fætur betri líðan!
gigtarfætur Oft kreptar, aumar tær, sigið tábergssvæði.
gæðaskór GREEN COMFORT skór eru hannaðir m.t.t. fóta og hreyfingar.
green comfort Danskir gæðaskór og heilsuskór með gæðainnleggjum. Lífaflsfræðileg hönnun m.t.t. fóta og hreyfingar, þróuð af fagfólki.
göngugreining Greining á göngumunstri, fótabeitingu, álgagpunktum m.t.t. stoðkerfis.
hamartær Krepptar tær sem oft orsakast af holfæti, tábergssigi, gigt eða rangri skónotkun.
heilsuskór Sjá gæðaskór.
herraskór GREEN COMFORT gæðaskór með innleggi.
hnéeymsli Má oft rekja til skekkju í fót- og öklaliðum.
holfótur Há rist, djúpur fótbogi/il. Oft tábergssig og bognar tær. Meðfætt.
hæleymsli Orsök getur verið rangstaða í fótum (t.d. holfótur, hælspori, rýrnandi fituvefur).
hælspori Beinútvöxtur á neðanverðu hælbeini, veldur oft sársauka.
hælsprungur Óæskilegar sprungur á hæl, oft vegna húðþurrks og mikillar siggmyndunar.
höggvörn Sjá innlegg.
ilsig Sjá plattfótur.
innlegg Innlegg eru mikilvæg höggvörn fyrir stoðkerfið. Fólk tekur almennt allt að 20.000 skref á dag, um 90% á hörðu undirlagi.
innleggjaráðgjöf
Ráðgjöf um hvers konar innlegg henta hverjum, í hvernig skó og við hvaða aðstæður.
innleggjagerð Innlegg geta verið byggð upp eða slípuð niður, m.t.t. viðkomandi fótskekkju eða fótameins.
innleggssólar Sjá innlegg.
karlmannaskór GREEN COMFORT gæðaskór með innleggi.
kvenskór GREEN COMFORT gæðaskór með innleggi.
lepppar Sjá innlegg.
líkþorn Nabbi, ofvöxtur í húðfrumum til varnar álags/núningssvæði. Orsök: skór.
naglaofvöxtur Neglur (oft á tám) verða þykkari vegna skerts blóðflæðis, sveppasýkingar, lyfjanotkunar ...
naglaspangir Til að rétta niðurgrónar neglur. Ýmist mótaðar úr stálvír eða að plastþynna er límd á neglur.
naglastyrking Ýmsir dropar eða krem hjálpa.
naglasveppur Sveppasýking á milli naglabeðs og naglar. Nögl gulnar, þykknar og jafnvel losnar frá naglabeði. Lyfjameðferð þarf til að uppræta sýkingu. Meðferð fótaaðgerðafræðings getur heft framgang.
naglaþröng Þegar umgjörð nagla er of þröng fyrir nögl/neglur, neglurnar vaxa inn/niður og valda sársauka.
niðurgrónar neglur Oft v/ sýktrar eða skaddaðrar naglar eða af rangri skónotkun. Ráð: regluleg meðerð eða spangir hjá fótaaðgerðafræðingi.
plattfótur Ilsig. Þegar ilin er flöt. Meðfætt eða áunnið.
ráðgjöf Ráðgjöf varðandi fótamein og fóthirðu; krem, skór og innlegg. Ráðgjöf fyrir sykursjúka.
sigg Óeðlileg siggmyndun á fótum getur bent til fótþurrks, rangbeitingar fóta, fótskekkju, eða rangrar skónotkunar.
sjúkraskór Sérstakir Green Comfort skór fyrir sykursjúka, skór fyrir krepptar tær (gigt), breiða og vangæfa fætur.
sjúkrasokkar Sjá stuðningssokkar.
skoðun Skoðun á fótum m.t.t. fótameina, ásamt ráðgjöf.
skóinnlegg Sjá innlegg.
skór GREEN COMFORT, danskir gæðaskór – lífaflsfræðileg hönnun.
skóráðgjöf Ráðgjöf um rétta skónotkun m.t.t. fóta og notkunar hverju sinni.
skóverslun GREEN COMFORT eru danskir gæðaskór sem fást hjá Fótaaðgerðastofu Guðrúnar Alfreðsdóttur.
sólar Sjá innlegg.
spangir Sjá naglaspangir.
stoðkerfið Beinagrindin ásamt liðum, liðböndum, vöðvum, sinum.
stuðningssokkar Hálf- og heilsokkar sem örva blóðrásina. Heppilegir fyrir hjartasjúklinga, æskilegir í flugi.
sveppasýking Herjar t.d. á fætur og/eða táneglur. Orsök t.d. smit (opinberir sund- og baðstaðir), jafnvel högg, langvarandi álag á neglur.
sveppavörn Góð fóthirða og smitvarnir. Ráðgjöf hjá fótaaðgerðafræðingi.
sykursýki Fótaaðgerðafræðingar eru mikilvægir forvarnaraðilar: t.d. skynprófanir, meðferð og ráðgjöf varðandi sykursýkisfætur.
sykursýkisfætur Treg blóðrás og skert taugaboð til fóta getur gert smá skeinu að alvarlegu sári. Sjá sykursýki.
tábergssig Þegar millibein í fæti falla niður. Oft vegna langvarnadi álags. Orsök einnig ættgengi, hælaskór, miklar stöður, þyngdaraukning.
táneglur Heilbrigðar, niðurgrónar eða sýktar neglur á tám.
táskekkja Inndregin stóratá og/eða krepptar tær. Oft af völdum rangrar skónotkunar eða ættgengt. Sjá t.d. holfótur, gigtarfætur.
tær Heilbrigðar tær eru mikilvægar fyrir rétt göngumunstur Sjá táskekkja.
varta Vírussýking, smitandi (opinberir sund- og baðstaðir). Meðferð hjá fótaaðgerðafræðingi eða t.d. húðsjúkdómalækni.
verslun GREEN COMFORT, danskir gæðaskór og orkuinnlegg. Fást hjá Fótaaðgerðastofu Guðrúnar Alfreðsdóttur.
vörtur Sjá varta.
þykkar neglur Sjá naglaofvöxtur.

- G.A. tók saman.
 
> Um fótaaðgerðafræði
> Fótamein
> Tábergssig
> Slæmir skór
> Orðalisti
> Reglugerð um starf-
semi fótaaðgerða-
fræðinga
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva - miðlun
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa