Hvað er fótaaðgerðafræði?
Margir rugla saman fótaaðgerðafræðingi
og snyrtifræðingi. Báðir aðilar
fást við almenna fótsnyrtingu en að
auki hafa fótaaðgerðafræðingar
menntun til að meðhöndla ýmis fótamein
og veita víðtæka faglega ráðgjöf
um velferð fótanna. Auk hefðbundinna fótaaðgerða
fól nám Guðrúnar í sér
ítarlega kennslu í fót- og göngugreiningu
og innleggjagerð.
Allt of margir láta velferð fótanna
mæta afgangi. Tennurnar og bílinn látum
við hins vegar athuga minnst einu sinni á ári!
Við teljum svo sjálfsagt að fæturnir séu
til friðs þar til einkennin láta á
sér kræla. Það er þó vissulega
betra að heimsækja fótaaðgerðafræðing
seint en aldrei. Velferð fótanna hefur með velferð
alls líkamans að gera.
Áhættuþættir
eru lengri stöður og ganga á hörðu
undirlagi og þar skipta skór og innlegg miklu máli.
Um 85% fótameina má rekja til óheppilegs
skótaus, en með fótameinum er átt við
allt frá líkþornum til fótskekkju.
Heimsókn til fótaaðgerðafræðings
er skref í rétta átt ...
FRÍSKARI FÆTUR BETRI LÍÐAN!
|
|
|