FORSÍÐA   STOFAN   SKÓRNIR   GJAFAKORT   FRÓÐLEIKUR  
     
Smelltu á mynd til að stækkaFætur í fyrirrúmi í Búðagerði

Fótaaðgerðastofa Guðrúnar Alfreðs-
dóttur er í Búðagerði 10-12 í Reykjavík Smelltu til að átta þig á staðsetningunni
Næg bílastæði og gengið beint inn af götunni. Hjá Guðrúnu er opið alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.


Fótaaðgerðastofa Guðrúnar býður upp á ...

  • Fótaaðgerðir, fótanudd og faglega ráðgjöf. Í fótaaðgerð felst t.d. snyrting, meðferð á líkþornum, vörtum, niðurgrónum nöglum, siggi, sveppasýkingu í nöglum.
  • Spanga- og sílikonmeðferð.
  • Fyrirbyggjandi meðferð og ráðgjöf fyrir sykursjúka.
  • Fót- og göngugreiningu og innleggjagerð, með tilliti til áunninna fótameina. >> Sjá nánar um fótamein
  • Skó og orkuinnlegg frá GREEN COMFORT, framleiðanda danskrar gæðavöru. >> Sjá nánar um skó og orkuinnlegg
  • Persónulega ráðgjöf um fóthirðu, val á skóm, innleggjum, kremum o.fl. sem fyrirbyggir fótamein eða kemur aumum fótum í betra ástand.
Fótaaðgerðir / fótsnyrting - Hver er munurinn?
Margir virðast telja að ein og sama starfsstéttin annist meðferð fóta hér á landi. Þeir gera ekki greinarmun á stofum fótaaðgerðafræðinga annars vegar og hins vegar þeirra snyrtifræðinga sem m.a. fást við fótsnyrtingu. Staðreyndin er þó sú að aðeins löggiltir fótaaðgerðafræðingar hafa menntun og þar með leyfi til að meðhöndla fótamein eins og líkþorn, vörtur, þykkar neglur, niðurgrónar neglur, sveppaneglur og þykkt sigg - til að veita faglega ráðgjöf um velferð fótanna t.d. varðandi skó, innlegg, fótaæfingar og krem - auk meðferðar fóta sykursjúkra. Síðustu 7-8 ár hefur svo fót- og göngugreining ásamt innleggjagerð bæst við menntun fótaaðgerðafræðinga og því aukið starfssvið þeirra. Fótaaðgerð og fótsnyrting er semsé ekki hið sama! >> Lestu meira um starfssvið fótaaðgerðafræðingur

Heimsókn til fótaaðgerðafræðings er skref í rétta átt ...

FRÍSKARI FÆTUR – BETRI LÍÐAN!
 
Guðrún Alfreðs-
dóttir er lögg. fótaaðgerða-
fræðingur og í
Félagi íslenskra fóta-
aðgerðafræðinga.
>> Meira
 
Hjá Guðrúnu er OPIÐ alla virka daga frá kl. 10 til 17, eða eftir frekara samkomulagi.

Tímapantanir og upplýsingar í síma 553 35 03 eða með tölvupósti til
postur@friskarifaetur.
 
Um 85% fótameina nútímafólks teljast áunnin að mestu. Hér er átt við allt frá líkþornum til fótskekkju, t.d. tábergssig, skekkja í hæl eða ökkla. >> Meira
 
Allir skór frá GREEN COMFORT hafa orkuinnlegg, ýmist laus eða sem fastan innri sóla, mismunandi þykk eftir tegundum. >> Meira
 
Rétt til að kalla sig fótaaðgerða-
fræðing og starfa sem slíkur hefur sá einn sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra. >> Meira
 
Gefðu gjafakort í fótadekur!
 
Vefhönnun: Mínerva - miðlun
   
Fótaaðgerðast. G.A. Búðagerði 10-12 Sími 553 35 03 postur@friskarifaetur.is Opið mán - fös 10-17
 
  Vefhönnun: MÍNERVA - miðlun og útgáfa